Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Axel og Guðrún klúbbmeistarar Keilis - Þórdís nálægt 18. titlinum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 13. júlí 2026 kl. 21:14

Axel og Guðrún klúbbmeistarar Keilis - Þórdís nálægt 18. titlinum

Axel Bóasson og Guðrún Birna Snæþórsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbsins Keilis 2026. Spenna var fram í lokahring í báðum flokkum og umspil hjá konunum.

Guðrún hafði betur gegn hinni sextugu Þórdísi Geirsdóttur sem var nálægt því að bæta átjánda meistaramótstitlinum við í sitt safn. Sú unga hafði betur í þriggja holu umspili og þetta er í fyrsta sinn sem Guðrún vinnur. Þær léku báðar á +27 en mikil spenna var hjá konunum þar sem fjórar voru í baráttunni.

Axel sem vann í fimmta sinn, var með fjögurra högga forystu fyrir lokahringinn á Birgi Björn Magnússon sem varð Íslandsmeistari í holukeppni nýlega. Birgir vann það forskot niður um þrjú högg á fyrri níu holunum í lokahringnum en þrefaldur skolli hjá honum 12. holu gerði út um vonir hans um að jafna við Axel.

Axel endaði á höggi undir pari, 287 höggum og Birgir Björn á +3.

Í 3.-4. sæti voru þeir Máni Freyr Vigfússon og Halldór Jóhannsson á 293 höggum.