Atvinnumenn geta „sjankað“ og fá líka alvöru sprengjur
Bandaríkjamaðurinn Tom Hoge átti „sprengju“ Players mótsins um síðustu helgi. Hann fékk níu högg á 7. brautina sem er par 4. En hvernig fór hann að því?
Upphafshöggið með dræver endaði í vatnstorfæru, næsta högg „toppaði“ Hoge og til að geta slegið fjórða höggið þurfti kappinn að fara úr skónum en ekki vildi betur til en að hann „sjankaði“ höggið. Hann sló síðan tvö högg í viðbót og boltinn endaði í glompu við flötina. Þaðan sló hann fínt högg, tæpan metra frá holu en hann missti púttið. Níu högg, takk fyrir.
Hann var á parinu í heildina þegar hann kom að 7. brautinni og var í fínum málum. Með svipaðri spilamennsku áfram hefði hann flogið í gegnum niðurskurðinn. En svona er golfið, líka hjá þeim bestu.


