Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Aron-ar á toppnum - líka spenna í kvennaflokki
Laugardagur 30. maí 2026 kl. 22:01

Aron-ar á toppnum - líka spenna í kvennaflokki

Aron Emil Gunnarsson úr GOS og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR eru bæði með eins högg forskot á næstu kylfinga í Korpubikarnum eftir tvo hringi af þremur. Lokahringurinn verður á sunnudag.

Aron Emil lék annan hringinn á 71 höggi en nafni hans og tvöfaldur Íslandsmeistari, Aron Snær Júlíusson úr GKG er aðeins höggi á eftir en hann lék annan hringinn á 65 höggum. Jóhann Frank Halldórsson úr GR og Veigar Heiðarsson úr GA eru jafnir í þriðja sæti á -4.

Í kvennaflokki hefur Perla Sól tekið forystuna en hún lék á 73 höggum og er á tveimur undir pari. Ásdís Valtýsdóttir er önnur, höggi á eftir. Tveimur höggum á eftir Perlu eru þær Fjóla Margrét Viðarsdóttur úr GS, Eva Kristinsdóttir úr GM og atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR, allar á pari.

Það verður því mikil spenna á Korpúlfsstaðavelli á lokadegi mótsins.