Annar Norðmaður fram á sjónarsvið bestu kylfinga
Norðmaðurinn Kristoffer Reitan hefur skotist upp á stjörnuhiminn bestu kylfinga heims eftir sigur hans á Cadillac mótinu á PGA mótaröðini um helgina. Hann var þriðji varamaður inn í mótið og þakkaði fyrir það með frábæru golfi.
Englendinurinn Alex Fitzpatrick hélt áfram góðri spilamennsku en hann varð í 4. sæti. Daninn Nicolaai Hoygaard endaði jafn í 2.-3 sæti með Ricky Fowler. Spennan var mikil og Evrópukylfingar voru í sviðsljósinu.
Reitan er annar Norðmaðurinn til að sigra á PGA mótaröðinni en Victor Hovland hefur verið í hópi bestu kyflinga heims undanfarin ár.


