Andrea í 33. sæti í Írlandi
Andrea Bergsdóttir endaði í 33. sæti á Womens Irish Challenge mótinu á LETAS mótaröðinni en leikið var á Malahide golfvellinum í Dublin í Írlandi. Ragnhildur Kristinsdóttir og Hulda Gestsdóttir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.
Andrea lék hrininga þrjá á fimm yfir pari, 73-74-74 en skor var hátt á Malahide vellinum og aðeins þrír leikmenn lék á undir pari í mótinu. Heimakonan Beth Coulter sigraði á fimm undir pari.
Hulda var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn og lék á 72-77 (+5) og Ragnhildur tveimur höggum frá því, á 76-74 (+6).
Staða íslensku stúlknanna hefur aðeins versnað en þeim hefur gengið frekar illa í síðustu tveimur mótum en mjög gott gengi í mörgum mótum á undan.
Hulda er í 8. sæti stigalistans eftir að hafa komist efst í 4. sæti. Ragnhildur er í 11. sæti. Mjótt er á munum á sætum 5. til 11. Andrea er í 32. sæti.
Hulda og Andrea verða með í næsta LETAS móti í Danmörku í næstu viku en Ragnhildur verður meðal keppenda á Íslandsmótinu á Korpu.


