Aðstæður oft skrautlegar í meistaramótinu í Skagafirði - Hlynur og Dagbjört meistarar
Klúbbmeistarar Golfklúbbs Skagafjarðar 2026 eru Hlynur Freyr Einarsson og Dagbjört Sísí Einarsdóttir, sem bæði unnu titilinn í fyrsta skipti. Og tóku þar með við af ríkjandi meisturum, Jóhanni Erni sem hafði unnið átta sinnum áður og Önnu Karen sem hafði unnið sex sinnum í röð.
Meistaramót GSS 2026 fór fram dagana 29. júní til 4. júlí á Hlíðarendavelli. Góð þátttaka var þrátt fyrir slæma veðurspá, sem jú að mestu, ef ekki öllu leyti gekk eftir og kannski rúmlega það, en alls voru það 97 kylfingar sem tóku þátt í vikunni.
Í barna og unglingaflokkum voru 28 þátttakendur sem léku í tveimur flokkum en þátttakendur í fullorðins flokkum voru 69 sem léku í átta flokkum. Meistaramótsvikan er ein skemmtilegasta vika golfsumarsins þar sem völlurinn iðar af lífi og fjöri. Aðstæður á Hlíðarendavelli voru oft á tíðum ansi skrautlegar, og voru keppendur æði oft rennandi blautir eða vindbarnir, og jafnvel bæði. Keppnin var að vanda æsispennandi og voru úrslit í mörgum flokkum ekki að ráðast fyrr en á síðustu holunum á lokadegi. Leika þurfti tvo bráðabana til að skera úr um lokaúrslit. Lokahóf fullorðinsflokka fór fram í neðri sal á Kaffi Krók á laugardagskvöldið þar sem kylfingar áttu saman góða kvöldstund og verðlaun voru afhent.
Sjá má afrakstur af góðu barna- og unglingastarfi en þrír af átta meisturum í fullorðins flokkunum eru 11, 13 og 17 ára. Golfkennari klúbbsins, Atli Freyr, á mikið hrós skilið fyrir sinn þátt, segir í tilkynningu frá GSS.
Úrslit meistaramóts GSS 2026 í flokkum fullorðinna eru eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar (hvítir teigar)
1. Hlynur Freyr Einarsson, 330 högg
2. Jóhann Örn Bjarkason, 334 högg
3. Ingvi Þór Óskarsson, 335 högg
Meistaraflokkur kvenna – 72 holu höggleikur án forgjafar (bláir teigar)
1. Dagbjört Sísí Einarsdóttir, 313 högg
2. Anna Karen Hjartardóttir, 327 högg
3. Una Karen Guðmundsdóttir, 335 högg
Fyrsti flokkur karla – 72 holu höggleikur án forgjafar (gulir teigar)
1. Sigurbjörn Darri Pétursson, 359 högg (að loknum bráðabana)
2. Brynjar Már Guðmundsson, 359 högg
3. Rafn Ingi Rafnsson, 360 högg
Fyrsti flokkur kvenna – 63 holu höggleikur án forgjafar (rauðir teigar)
1. Margrét Helga Hallsdóttir, 342 högg
2. Sylvía Dögg Gunnarsdóttir, 351 högg
3. Aldís Hilmarsdóttir, 374 högg
Annar flokkur karla – 54 holu höggleikur án forgjafar (gulir teigar)
1. Brynjar Morgan Gunnarsson, 320 högg
2. Guðni Kristjánsson, 331 högg
3. Róbert Óttarsson, 338 högg
Annar flokkur kvenna – 54 holu höggleikur án forgjafar (rauðir teigar)
1. Nína Morgan Brynjarsdóttir, 331 högg
2. Hafdís Skarphéðinsdóttir, 347 högg (að loknum bráðabana)
3. Hanna Dóra Björnsdóttir, 347 högg
Öldungaflokkur – 27 holu höggleikur með forgjöf
1. Guðrún Björg Guðmundsdóttir, 118 högg nettó
2. Magnús Einar Svavarsson, 149 högg nettó
3. Friðrik Margeir Friðriksson, 154 högg nettó
Háforgjafaflokkur – 18 holu punktakeppni með forgjöf
1. Bryndís Rut Haraldsdóttir, 38 pkt.
2. Sigrún Ólafsdóttir, 35 pkt.
3. Ísak Sigurjónsson, 33 pkt.
Hjörtur Geirmundsson tók myndir á meistaramótinu sem sjá má á Facebook síðu klúbbsins en hér eru nokkrar flottar af meistaraflokkunum. Útsýnið glæsilegt víða á vellinum.








