260 keppendur í GULL 24 Open í Kiðjabergi
Andri Jón Sigurbjörnsson úr Golfklúbbi Kiðjabergs sigraði í GULL 24 mótinu sem fram fór í Kiðjabergi nýlega. Ræst var út viðstöðulaust í 24 tíma, eða einn sólarhring. Rúmlega 20 erlendir kylfingar mættu og hafa þeir aldrei verið fleiri. Það skiptust á skin og skúrir meðan á mótinu stóð og voru sumir heppnari en aðrir með verður að því er segir á heimasíðu GKB.
Fjórir kylfingar léku á 73 höggum, sem var besta skorið í höggleik. Andri Jón Sigurbjörnsson úr GKB sigraði þar sem hann var með besta skorið á seinni níu. Ragnar Helgi Ragnarsson úr GG og Sölvi Svavarsson úr GOS fengu flesta punkta í karlaflokki og Guðrún Ýr Birgisdóttir úr GR og Kristín Nielsen úr GKB léku best kvenna í punktakeppni.
Keppt var í fimm flokkum, fjórum í punktakeppni og einum í höggleik. Helstu úrslit voru sem hér segir:
Efstu menn í höggleik:
1 Andri Jón Sigurbjörnsson, Golfklúbbur Kiðjabergs, 73
2 Jón Bjargmundsson, Golfklúbbur Kiðjabergs, 73
3 Árni Evert Leósson, Golfklúbbur Selfoss. 73
4 Ævar Pétursson, Golfklúbbur Suðurnesja 73
Punktakeppni, karlar +8 til 15,9 í forgjöf:
1 Jón Bjargmundsson, GKB, 41
2 Björn Atli Rúnarsson, GKB, 39
3 Stefán Torrini, Golfklúbbur Álftaness, 39
Karlar 16 og hærra í forgjöf (hámark 24 í leikforgjöf):
1 Ragnar Helgi Ragnarsson, Golfklúbbur Grindavíkur, 43
2 Sölvi Svavarsson, Golfklúbbur Selfoss, 43
3 Jón Þór Sigurðsson, Golfklúbbur Reykjavíkur. 40
Konur +8 til 19,9 í forgjöf
1 Guðrún Ýr Birgisdóttir, Golfklúbbur Reykjavíkur, 36
2 Helga Guðmundsdóttir, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, 32
3 María Björk Pálsdóttir, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, 31
Konur 20 og hærra í forgjöf (hámark 32 í leikforgjöf)
1 Kristín Nielsen, Golfklúbbur Kiðjabergs, 36
2 Audronė Butkevičienė, The V Golf Club, 35
3 Kristín B Eyjólfsdóttir, Golfklúbbur Kiðjabergs, 34
Nándarverðlaun:
3. Hola: Kristín Elfa Axelsdóttir - 1,07m
7. Hola: Sveinn Gunnar Björnsson - 2,01m
12. Hola: Kristinn Daníel Kristinsson - 1,79m
16. Hola: Grímur Þórisson - 2,35m


