Góð spilamennska dugar ekki alltaf til að komast í gegnum niðurskurð - segir norski atvinnukylfingurinn Halvorsen
Viktor Hovland og Kristoffer Reitan eru líklega fyrstu nöfnin sem koma upp í huga golfáhugamanna, þegar talið berst að norskum kylfingum sem eru að gera það gott þessa dagana; Hovland hefur auðvitað farið með himinskautum undanfarin misseri, ekki síst vegna þátttöku hans í Ryder bikarnum og Reitan hefur slegið í gegn á PGA mótaröðinni.
Viktor Halvorsen er vissulega ekki eins vel þekktur, en þessi geðþekki tuttugu og níu ára gamli kylfingur frá Larvik er hins vegar að standa sig ágætlega á DP World tour - Evrópsku mótaröðinni, þangað sem hann komst inn á síðasta tímabili. Kylfingur.is hitti Halvorsen á Soudal-mótinu í Belgíu í síðasta mánuði og ræddi lífið á túrnum.
„Það hjálpar vissulega að hafa spilað áður á þessum völlum og þekkja aðstæðurnar betur,“ sagði Halvorsen á laugardeginum, þegar hann var búinn að skila inn kortinu eftir þriðja hring. „Þetta var erfitt í fyrra, þegar maður var sífellt að upplifa nýjar aðstæður og nýja velli, en núna er ég orðinn meira heimavanur. “

„ Verðum í þrjá, fjóra tíma á púttsvæðinu.“
Halvorsen var nálægt niðurskurðinum eftir tvo hringi, og var þess vegna í fyrsta hollinu sem fór út á laugardagsmorgun. Hringurinn var búinn um hádegi og það blasti þess vegna við að spyrja hvernig hann og Magnus Ringsted kylfusveinninn hans ætluðu að verja deginum.
„Við ætlum beint í hádegismat, og síðan þarf ég að reyna að finna út úr því sem hefur ekki verið að virka hjá mér í þessu móti, þannig að við verðum næstu þrjá fjóra klukkutíma úti á æfingasvæði.“
Og þegar Halvorsen er spurður nánar um þetta, þá stendur ekki á svari: „Ég hef verið að slá vel úti á velli, en púttin hafa ekki verið nógu góð, þannig að ég hef annars vegar ekki náð í fugla þegar ég hef haft færi á því, auk þess að missa mikilvæg pútt fyrir pari.“
Sem var einmitt það sem gerðist á átjánda gríninu; eftir upphafshögg sem lenti hægra megin í karganum, gerði Halvorsen vel í því að koma boltanum á flötina, einungis til þess að þrípútta fyrir skolla.
Skömmu eftir viðtalið mátti síðan sjá hann og Magnus á púttsvæðinu, með hjálpartæki golfarans, púttlínur, spegla og aðrar græjur til að finna lausnir á púttvandræðum Halvorsens.
„Ég var alveg ánægður með að vera á tveimur undir pari í dag, en maður vill geta gert betur.“

Var tíu ára þegar hann fór að taka golfið alvarlega
Halvorsen ólst upp í Larvik og steig þar sín fyrstu skref á golfvellinum - og hann ljómar þegar hann er spurður um völlinn þar. „Það er virkilega minn uppáhaldsvöllur og sá sem mig langar alltaf að spila á. Völlurinn er frekar opinn, svolítið eins og strandvöllur, þannig að maður getur tekið driver á flestum holum. Þar að auki er mjög góð stemning í klúbbnum og mér er alltaf tekið vel þegar ég kem þangað.“
Halvorsen byrjaði að spila golf þegar hann var fimm ára gamall. „Ég hafði reyndar miklu meiri áhuga á fótbolta framan af, en svo þegar ég var orðinn tíu ára eða svo, þá fór ég að taka golfið alvarlega og um það bil ári síðar komst ekkert annað sport að hjá mér.“
Hann gerðist atvinnumaður þegar hann var átján ára, sleppti því að fara í menntaskóla, og reyndi fyrir sér á PGA mótaröðinni í Suður-Ameríku. „Mér gekk ekki vel þar, þannig að ég kom aftur og reyndi fyrir mér í Evrópu, með þeim árangri að ég komst inn á Evrópumótaröðina í fyrra, eftir að hafa spilað á Áskorendamótaröðinni.“
Halvorsen er núna í 89. sæti á Evrópsku mótaröðinni (R2DR). „Það eru vissulega mjög margir góðir kylfingar á Áskorendamótaröðinni, en hérna er úrvalið af þeim meira, þannig að það er erfiðara að skara framúr, sem þýðir að maður getur verið að spila mjög gott golf, en samt verið í kringum niðurskurðinn.“
Halvorsen á reyndar enn eftir að landa sínum fyrsta sigri á Evrópumótaröðinni, en hann þarf ekki að kvarta mikið; í fyrra komst hann í gegnum niðurskurðinn í 11 af tuttugu og einu móti og þénaði um 36 milljónir króna; það sem af er þessu ári hefur hann spilaði í ellefu mótum og komist í gegn í sex þeirra.
Traustur og viðkunnalegur
„Hann er traustur kylfingur og mjög viðkunnalegur,“ segir Guðmundur Ágúst Kristjánsson, fyrrum atvinnumaður í golfi. Guðmundur spilaði með Halvorsen í eftirminnilegu móti á Áskorendamótaröðinni fyrir tveimur árum (Danish Golf Challenge), þar sem þeir tveir háðu harða baráttu um sigurinn. „Við vorum saman í lokahollinu, bæði laugardag og sunnudag, og hann var alltaf um það bil tveimur höggum á undan mér.“
Svo fór að lokum að Halvorsen stóð uppi sem sigurvegari, á 19 höggum undir pari og Guðmundur var í öðru sæti, þremur höggum á eftir.
„Ég hef spilað með nokkrum íslenskum kylfingum auk Guðmundar,“ segir Halvorsen, þegar hann er inntur eftir þessari tengingu. „Ég hef hitt nokkra þeirra á mótum hér og þar og reyndar spilað nokkrum sinnum með Axel Bóassyni, og við höfum oft talað um hvernig aðstæður eru svipaðar á Íslandi og í Noregi. Ég hef reyndar aldrei komið til Íslands, en mér sýnist að kylfingar þar séu að glíma við sömu áskoranir og í Noregi; veðrið og kuldann og hvað tímabilið er stutt. Það gerir það auðvitað að verkum að það er ekki auðvelt fyrir mig að búa í Noregi og undirbúa mig fyrir mót sem eru spiluð við allt aðrar aðstæður.“
Texti og myndir: Björn Malmquist.



