Ungu fólki fjölgar í golfíþróttinni
Golfíþróttin á Íslandi nýtur æ meiri vinsælda. Þegar nýjustu tölur golfklúbba eru skoðar þá fjölgaði kylfingum um 9% milli ára eða um rúmlega 2.000 kylfinga á öllum aldri. Þetta kemur fram í frétt frá Golfsambandi Íslands.
Golfsambandið hefur spáð fyrir um 2% fjölgun kylfinga árlega og fer þetta því fram úr björtustu vonum.
Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú. Þann 1. júlí 2024 voru 26.349 félagsmenn skráðir í golfklúbba víðs vegar um landið.
Þetta er aukning um rúmlega 2000 kylfinga frá því í fyrra eða sem nemur 9% aukningu. Þetta er í fyrsta sinn sem heildarfjöldi félagsmanna fer yfir 26.000.
Kylfingum sem eru 15 ára og yngri fjölgar um 11% á milli ára en í aldurshópnum 29 ára og yngri var aukningin mest. Kylfingum á aldrinum 16-19 ára fjölgaði um 16% og 20% aukning var í aldurshópnum 20-29 ára.
Í aldurshópnum 70-79 ára var 9% aukning og 14% aukning var í aldurshópnum 80 ára og eldri.
Árið 2000 voru 8.500 félagsmenn skráðir í golfklúbba landsins. Á síðustu 24 árum hefur félagsmönnum í golfklúbbum landsins fjölgað um tæplega 18.000 eða sem nemur 210%.
Golfsambandið er næst stærsta íþróttasambandið innan ÍSÍ með rúmlega 26.000 félaga en Knattspyrnusambandið er fjölmennast með um 29.000 félaga.
Árið 2019 eða fyrir sex árum voru tæplega 17.900 kylfingar skráðir í golfklúbba landsins – og hefur þeim fjölgað um tæplega 8.500 á síðustu fimm árum – sem er 47% aukning.