Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hlynur jafn í efsta sæti og Dagbjartur jafn í 2. sæti
Hlynur Bergsson er jafn í efsta sæti fyrir lokahringinn. kylfingur/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 24. september 2026 kl. 13:20

Hlynur jafn í efsta sæti og Dagbjartur jafn í 2. sæti

Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson eru í toppbaráttunni á Folksam mótinu sem fram fer á hinum kunna Barseback golfvelli í Svíþjóð á Nordic mótaröðinni. Hlynur er jafn í efsta sæti með tveimur öðrum og Dagbjartur höggi á eftir þegar einn keppnisdegi er ólokið.

Hlynur er á sjö undir pari, 69-70 en parið er 73.

Dagbjartur er á sex undir pari, 68-72.

Lokahringurinn verður á morgun, föstudag.

Þeir félagar eru í 30. og 31. sæti á stigalistanum og ef þeir halda sig í efstu sætunum þá er ljóst að þeir eru að vinna sig upp listann.

Staðan.