Tvö draumahögg á tveimur dögum – íslenskir kylfingar slá í gegn í Tyrklandi
Það hefur heldur betur verið líf og fjör hjá íslenskum kylfingum í Tyrklandi undanfarna daga. Í golfferð á vegum Icelandair VITA og Peter Salmon Golf gerðust þau skemmtilegu tíðindi að tveir íslenskir kylfingar fóru holu í höggi á hinum glæsilega Gloria Old Course í Belek – með aðeins eins dags millibili!
Fyrra draumahöggið kom sunnudaginn 25. október þegar Ágúst Valgeirsson steig á teig á 18. holu Gloria Old Course. Holan er um 150 metra löng og Ágúst þurfti aðeins eitt högg til að koma boltanum á áfangastað. Það sem gerir afrek Ágústs enn skemmtilegra er að þetta var í þriðja sinn sem hann fer holu í höggi! Sumir kylfingar bíða heila ævi eftir því að upplifa slíka stund einu sinni, en Ágúst virðist hafa fundið uppskriftina að draumahögginu.
Gleðin var þó hvergi nærri búin.
Strax daginn eftir, mánudaginn 26. október, var komið að Oddnýju Hervöru Jóhannsdóttur að skrifa sína eigin golfsögu. Á 10. holu sama vallar, sem er rúmlega 100 metra löng, sló hún draumahöggið og sá boltann rata beint í holuna. Fyrir Oddnýju var þetta í fyrsta sinn sem hún fer holu í höggi og því ógleymanleg stund í golfíþróttinni. Þau eru bæði meðlimir í Golfklúbbi Odds og eru í hópferð klúbbsins til Tyrklands.
Tyrkland sannkölluð golfparadís
Það er ekki að ástæðulausu að Tyrkland nýtur mikilla vinsælda meðal íslenskra kylfinga. Golfsvæðið í Belek við Miðjarðarhafið býður upp á einstaka blöndu af glæsilegum golfvöllum, fyrsta flokks hótelum, góðri þjónustu og frábærri aðstöðu fyrir kylfinga.
„Gloria Golf Club er þar í fremstu röð, með stórkostlega velli þar sem vel hirtar brautir, hávaxin furutré og fallegt umhverfi skapa eftirminnilega golfupplifun.
Icelandair VITA og Peter Salmon Golf hafa lagt metnað sinn í að bjóða íslenskum kylfingum vandaðar golfferðir á spennandi áfangastaði, þar sem golfið, aðbúnaðurinn og félagslegi þátturinn mynda eina heild. Tyrkland er sannarlega einn þeirra áfangastaða sem hafa upp á mikið að bjóða, jafnt fyrir vana kylfinga sem þá sem vilja njóta golfíþróttarinnar í góðum félagsskap,“ segir í frétt frá Icelandair VITA og Peter Salmon Golf.


