Scheffler óstöðvandi - sigraði á Memorial
Besti kylfingur heims, Scottie Scheffler er óstöðvandi um þessar mundir en hann vann sinn þriðja sigur á PGA mótaröðinni á Memorial mótinu á Murifield Village vellinum í Ohio sem lauk í gær. Þetta er þriðji sigur kappans í síðustu fjórum mótum og annar í röð á Memorial en aðeins Tiger Woods hefur sigrað á mótinu oftar en einu sinni, hann vann þrjú ár í röð 1999-2001 og tvisvar eftir það.
Murifield Village er einn erfiðasti völlurinn á PGA mótaröðinni en þetta er fyrsti völlurinn sem Jack Nicklaus hannaði á löngum ferli með golfvallahönnuður.
Ben Griffin var í baráttu við Scheffler en hann hefur komið skemmtilega á óvart síðustu vikurnar með því að sigra á tveimur mótum og enda svo í 2. sæti á Memorial en hann endaði fjórum höggum á efstir Scottie.