Fréttir

Ný þáttaröð um PGA mótaröðina á Netflix
Fimmtudagur 12. janúar 2023 kl. 13:16

Ný þáttaröð um PGA mótaröðina á Netflix

Kynningarstikla af nýrri Netflix þáttaröð sem birt var í vikunni gefur innsýn í lífið bakvið tjöldin í heimi atvinnukylfinga. Þáttaröðin sem heitir „Full Swing“ kemur á streymisveituna þann 15.febrúar næstkomandi. Þar verða margar af helstu stjörnum mótaraðarinnar í stórum hlutverkum. Rory MacIllroy verður þar á meðal, en ekki var búist við að hann kæmi fram í þáttunum. 

„Ef ég vil að leikurinn sem ég elska verði stundaður af kynslóðum framtíðarinnar, þá þarf að þróa leikinn“, segir Rory. Meðal kylfinga á mótaröðinni sem koma fram í þáttunum eru leikmaður ársins Scottie Scheffler, Jordan Spieth, Justin Thomas, Collin Morikawa, Tony Finau, Matt Fitzpatrick, Sahith Theegala, Joel Dahmen og Mito Pereira. Til viðbótar koma einnig fram Brooks Koepka, Dustin Johnsons, Joaquin Niemann og Ian Poulter, sem allir leika nú á LIV mótaröðinni.