Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Japaninn er nýliði ársins á DP mótaröðinni
Kota Kaneko og Guy Kinnings, yfirmaður DP World Tour.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 12. nóvember 2026 kl. 14:41

Japaninn er nýliði ársins á DP mótaröðinni

Kota Kaneko hefur verið útnefndur nýliði ársins á DP mótaröðinni 2026 og hlýtur Sir Henry Cotton-verðlaunin, en hann er annar japanski kylfingurinn sem hlýtur þessi virtu verðlaun.

Kaneko sló í gegn á sínu fyrsta tímabili með frábærum tveggja vikna kafla í maí, þegar hann hafnaði í öðru sæti á Soudal Open og sigraði á Austrian Alpine Open sjö dögum síðar.

Hann endaði auk þess fjórum sinnum meðal 20 efstu og tryggði sér þar með sæti sem einn af 50 efstu kylfingunum á Race to Dubai stigalistanum og komst þannig í lokamótið í Dúbaí.

Hinn 24 ára gamli kylfingur heldur áfram velgengni japanskra kylfinga á DP mótaröðinni undanfarin ár, en Ryo Hisatsune varð fyrsti kylfingurinn frá Japan til að hljóta Sir Henry Cotton-verðlaunin sem nýliði ársins árið 2023. Með sigri sínum á þessu tímabili varð Kaneko einn fimm japanskra kylfinga sem hafa unnið samtals sex titla frá árinu 2023.

„Fyrst af öllu er mér mikill heiður að hljóta þessi verðlaun,“ sagði Kaneko. „Sá fyrsti var Ryo Hisatsune, sem er góður vinur minn, við erum jafnaldrar og ég þekki hann mjög vel. Ég er því virkilega ánægður að vera kominn í sama hóp og hann.

„Ég held að getustigið í Japan hafi batnað og margir kylfingar vilja fara utan til að keppa. Ég held að það hjálpi mörgum kylfingum að koma hingað og spila mjög vel.