Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Haraldur góður eftir tvo hringi - Guðmundur komst ekki áfram
Laugardagur 7. júní 2025 kl. 07:56

Haraldur góður eftir tvo hringi - Guðmundur komst ekki áfram

Íslensku atvinnumennirnir Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru meðal keppenda á Swiss Challenge mótinu á Áskorendamótaröðinni en leikið er á Golf Sempach golfvellinum í Lucerne í Sviss. Haraldur er í góðum málum eftir tvo hringi en Guðmundur Ágúst komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Haraldur lék báða hringina á 70 höggum en parið er 71, og er á -2. Forystusauðirnir í mótinu er á -9 eftir 36 holur.

Guðmundur Ágúst náði sér ekki á strik í mótinu og lék á sjö yfir pari.

Örninn 2025
Örninn 2025

Þeir félagar eru með takmarkaðan þátttökurétt á mótaröðinnni sem er sú næst sterkasta í Evrópu.