Gunnlaugur í topp hundrað
Gunnlaugur Árni Sveinsson bætti stöðu sína á heimslista áhugakylfinga sem var settur á laggirnar í janúar 2007. Gunnlaugur Árni lék í liði Evrópu í Bonallack Trophy í byrjun árs og fékk stig fyrir þátttöku í því móti. Gunnlaugur hefur einnig leikið vel með liðinu sínu LSU í bandaríska háskólagolfinu og unnið sig upp listann. Hann fór upp um 3 sæti á heimslistanum og situr í 96. sæti.
Besti árangur á heimslista áhugakylfinga kvenna
Kylfingur | Besta sæti |
Guðrún Brá Björgvinsdóttir | 99. |
Andrea Bergsdóttir | 170. |
Hulda Clara Gestsdóttir | 197. |
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir | 222. |
Perla Sól Sigurbrandsdóttir | 238. |
Ragnhildur Kristinsdóttir | 299. |
Valdís Þóra Jónsdóttir | 310. |
Tinna Jóhannsdóttir | 395. |
Besti árangur á heimslista áhugakylfinga karla
Kylfingur | Besta sæti |
Gunnlaugur Árni Sveinsson | 96. |
Gísli Sveinbergsson | 99. |
Aron Snær Júlíusson | 108. |
Ólafur Björn Loftsson | 110. |
Haraldur Franklín Magnús | 136. |
Axel Bóasson | 136. |
Bjarki Pétursson | 156. |