Guðrún Brá komst ekki í gegn á Tene
Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Tenerife Womens Open sem fram fer á Abama vellinum á Tenerife. Guðrún keppir á fjórum mótum á LET Evrópumótaröðinni í júní en hún keppti á tveimur í síðasta mánuði.
Guðrún Brá lék fyrri hringin á 76 höggum þar sem lítið gekk hjá Hafnfirðingnum og engin fugl sá dagsins ljós á skorkortinu. Fjórir fuglar komu á skorkortið í næsta hring en fjórir skollar og einn tvöfaldur skolli komu í veg fyrir gott skor og niðurstaðan því sex yfir par.
Abama golfvöllurinn er einn af tveimur bestu golfvöllunum á Tenerife.
Guðrún keppir næst á Hulencourt mótinu í Belgíu á samnefndu golfsvæði í borginni Genappe í Belgíu.