Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Góð tilþrif hjá eldri kylfingum í Þorlákshöfn
Þórdís Geirsdóttir er dugleg á LEK mótaröðinni þar sem hún hefur verið mjög sigursæl.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 7. júní 2025 kl. 08:45

Góð tilþrif hjá eldri kylfingum í Þorlákshöfn

Eldri kylfingar sýndu góð tilþrif í öðru LEK móti ársins á Þorláksvelli 1. júní sl. Nú um hvítasunnuhelgina verður leikið á Húsatóftavelli í Grindavík og á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.

Í mótinu í Þorlákshöfn var Þórdís Geirsdóttir úr GK best án forgjafar á 76 höggum í 50+ og Siggeir Vilhjálmsson í GSE var á 68 höggum. Tómas Már Sigurðsson úr NK og Ingi Þór Hermansson úr GO voru með 35 punkta og sömuleiðis þær Oddný Sigsteinsdóttir úr GR og Alda Harðardóttir úr GV.

Fleiri úrslit hér að neðan.

Örninn 2025
Örninn 2025