Fréttir

Fyrsti Íslandsmeistarinn til að mæta næstur á teig
Fimmtudagur 24. október 2024 kl. 10:52

Fyrsti Íslandsmeistarinn til að mæta næstur á teig

Golfbox segir að forgjöfin sé 54

Það er ekki oft sem afrekskylfingar mæta í þennan dálk á Kylfingi og án ábyrgðar er Þórður Rafn Gissurarson fyrsti Íslandsmeistarinn sem svarar þessum stöðluðu spurningum. Þórður varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2015, reyndi fyrir sér í atvinnumennsku og stýrir málum í dag hjá Golfklúbbi Kiðjabergs. Hann hefur komið með margar ferskar hugmyndir inn í starfið en Kiðjabergsvöllurinn er einn af fallegri golfvöllum landsins.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Byrjaði ca. 8 ára. Var alltaf í fótbolta en langaði líka að vera í annarri íþrótt. Ákvað að prófa golf þar sem pabbi var í því og nýbúinn að kaupa golfsett handa mér. Fór á námskeið hjá Röggu Sig á Korpúlfsstöðum og þá var ekki aftur snúið.

Helstu afrek í golfinu?

Íslandsmeistari í höggleik karla 2015, sigurvegari á Jamega Tour - Calcot Park Open 2014, 2. sæti á Brno Open á Pro Golf Tour.

Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?

Gerðist á 14. teig í Kiðjabergi fyrir allnokkru síðan þegar ég var að hita mig aðeins upp eftir smá bið og buxurnar rifnuðu svakalega í klofinu. Henti mér aðeins of hratt í hnébeygju! Bara fyndið og kláraði hringinn eins og ekkert hafi í skorist.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?

Hef spilað með nokkrum PGA og European Tour spilurum; David Lingmerth, David Law, Glen Day o.fl. Allt topp menn.

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?

Það kom smá tímabil þegar ég var á mínum yngri árum að ég vildi ekki nota belti en annars ekki neitt annað.

Hefurðu farið holu í höggi? Ef já, lýstu augnablikinu. Ef ekki, hvað er það næsta sem þú hefur komist?

Fór holu í höggi í gofmóti á Pro Golf Tour á 15. holu á Hardenberg Golf Resort. 135 metra löng, 9 járn, lenti þrjá metra fram yfir holu og spann ofan í. Versta að kúlan stoppaði á holubrúninni og ég sneri mér vonsvikinn við og eflaust henti út einhverjum blótsyrðum hljóðlega þegar kúlan ákvað að detta. Pabbi sagði mér að hún hefði farið ofan í og fékk staðfestingu frá áhorfendum. Sem betur fer þurfti ég ekki að bjóða öllum upp á drykk þar sem aðal styrktaraðili mótsins var bjórframleiðandi og ákvað að splæsa. Reikningurinn hefði annars orðið nokkuð hár.

Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?

Ætli það sé ekki vippin. Fljótur að missa "touchið" ef maður hefur ekki æft það í langan tíma.

Aldur: 37

Klúbbur: Golfklúbbur Kiðjabergs

Forgjöf: GolfBox segir 54 en tel mig vera með ca. 0 miðað við þá fáu hringi sem ég hef spilað.

Uppáhaldsmatur: Naut og bearnise.

Uppáhaldsdrykkur: Vatn

Uppáhaldskylfingur: Craig Stadler. Rostungurinn er alltaf top of mind af einhverjum ástæðum. 

Þrír uppáhaldsgolfvellir:

Golfklúbbur Kiðjabergs, Seddiner See Golf Club í Þýskalandi og TPC Sawgrass Stadium Course í Florida. Verð líka að minnast á Adamstal Golf Club í Austurríki og Tobacco Road í Norður Karólínu.

Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: hola í Kiðjabergi, 1. hola í Brautarholti og 13. hola á Keili.

Erfiðasta golfholan: 2. hola í Kiðjabergi af öftustu teigum. Krefjandi teighögg og innáhögg. Má lítið koma upp á. Flötin slungin með miklu broti. Alvöru próf.

Erfiðasta höggið: Punch fade.                          

Ég hlusta á: Alæta á tónlist. 

Besta skor: 63 (-9) á Seddiner See Golf Club í Berlín. 

Besti kylfingurinn: Tiger frá upphafi, Scottie Scheffler ef við miðum við þá sem eru að spila reglulega núna.

Golfpokinn

Dræver: Callaway XR 16 Sub Zero m. Fujikura X-Stiff skafti (7.3)

Brautartré: Ping G30 með Project X 6.5 skafti

Járn: Srixon 765 m. Project X 6.5 sköftum (6.7)

Fleygjárn: Cleveland 46,50 og 54 gráður m. Project X 6.5 sköftum (6.5). Er svo með einn gamlan  Titleist SM4 58 gráður m. KBS C Taper S+ skafti (6.5).

Pútter: Caledonia Evo 33 tommu

Hanski: Titleist Players Glove

Skór: Ecco Biom C4

Kiðjabergsvöllurinn er einn...

... fallegasti...

... golfvöllur landsins.