Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Frábært hjá Andreu á Spáni - endaði í 4. sæti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 31. maí 2025 kl. 14:00

Frábært hjá Andreu á Spáni - endaði í 4. sæti

Andrea Bergsdóttir lék frábært golf og endaði jöfn í 4. sæti  á Sandtander mótinu áSpáni á LET Access mótaröðinni. Hún var höggi á eftir sigurvegaranum Alejandra Lleneza frá Mexíó sem sigraði eftir bráðabana við Lauren Holmey frá Hollandi og Jostice Bosiu frá Austurríki. Þetta er besti árangur Andreu á mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Ragnhildur Kristinsdóttir lék líka vel en hún endaði jöfn í 18. sæti.

Andra var með forystu fyrir lokadaginn og lék hann ágætlega en tapaði þremur höggum á fyrri níu holunum en fékk þó tvo fugla þar. Hún lék á tveimur undir pari síðustu ellefu holurnar en vantaði einn fugl í viðbót til að komast í bráðbanann.

Andrea er eftir þessa frammistöðu kominn í 19. sæti á stigalistanum en Ragnhildur er í 33. sæti en þær hafa báðar leikið í fjórum mótum af fimm á mótaröðinni. Frammistaða þeirra í þessu mót veit á gott um framhaldið.

Örninn 2025
Örninn 2025

Í lok tímabils fá efstu 7 kylfingarnir á stigalista LET Access mótaraðarinnar fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðina á næsta tímabili. Kylfingarnir í 8.-32. sæti komast beint í lokaúrtökumótið og eiga bæði möguleika á fullum og skilyrtum þáttökurétt í mótaröðinni.

Lokastaðan.