Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Fer í reynslubankann að spila með Harrington og Noren
Fimmtudagur 5. júní 2025 kl. 07:48

Fer í reynslubankann að spila með Harrington og Noren

„Það var virkilega gaman að spila með Padraig Harrington og Alex Noren. Maður lærði mikið af þeim út á velli og þetta er akkúrat sem ég vildi fyrir þetta mót. Mikil reynsla sem þeir hafa upplifað á sínum ferli og þeir voru með skemmtilegar sögur,“ segir Dagbjartur Sigurbrandsson en hann lék á í einu af lokaúrtökumótum fyrir Opna bandaríska mótið, US Open, sem fer fram á Oakmont vellinum í vikunni.

Dagbjartur lék 36 holurnar á +3, 71-76 en niðurskurðurinn miðaðist við +5. 

Dagbjartur lenti í ráshópi með tveimur mjög þekktum kylfingum, Íranum Patraig Harrington sem hefur á sínum ferli sigrað þrisvar sinnum á risamótum en síðustu þrjú árin hefur hann leikið að mestu leyti á PGA öldungamótaröðinni í Bandaríkjunum og verið þar meðal bestu kylfinga. Alex Noren er Sví sem m.a. var í liði Evrópubúa í Ryder bikarnum þegar leikið var á National vellinum í Frakklandi en hann á að baki tíu sigra á DP mótaröðinni. Þeir félagar komust ekki inn á mótið en Harrington var á -4 og Noren á -2.

Örninn 2025
Örninn 2025

„Ég var á góðum gír eftir fyrsta hringinn og náði því miður ekki taktinum á seinni hring eftir pásuna milli hringja. Völlurinn er fljótur að refsa manni þegar maður er ekki alveg on. Maður er lítið að pæla hvað þeir voru að spila á, heldur einbeitta mér að því sem ég hef stjórn á. Ég var ánægður með hvernig ég nálgaðist hlutina sem og svo kemur einhver niðurstaða út úr því. Ég tók mikinn lærdóm frá mótinu og vonandi verð ég þarna aftur á næsta ári. Maður vill vera í svona aðstæðum oftar og keppa við þessa leikmenn.“

Dagbjartur var að klára háskólanám við University of Missouri í síðasta mánúði og hann segir nóg af golfi framundan.

„Ég er að fara í British Am Qualifier 13. júní og svo er Evrópumót einstaklinga í Svíþjóð og Evrópumót liða í Írlandi. Svo ætla ég á úrtökumót fyrir DP World Tour í haust sem verður spennandi.“

Aðspurður um hvað hann þurfi að bæta til að komast á næsta stig segir hann að sé að keppa meira og öðlast meiri reynslu. „Ég myndi segja mest að spila oftar í svona aðstæðum og halda áfram að leggja inn í reynslubankann. Það er alltaf hægt að bæta sig í öllu sem maður er að gera en auðvitað er mikilvægt að finna leið að hafa slæmu hringina betri. Koma sér nær holu í innáhöggunum og bæta stutta spilið í kringum flatirnar,“ segir Dagbjartur.

Harrington hefur oft lyft bikurum um ævina.

Noren í Evrópubúningi á Ryder bikarnum 2018 í Frakklandi.