Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Bjarni Fritzson hefur upplifað ýmislegt á golferlinum
Bjarni, annar frá vinstri ásamt félögum sínum í golfhópnum Tipsy, stuttu áður en þeir mættu á teig í fyrsta móti sumarsins á Húsatóftavelli í Grindavík. Þeir félagarnir eru nokkrir af rúmlega hundrað nýjum meðlimum í Golfklúbbi Grindavíkur.
Mánudagur 2. júní 2025 kl. 11:07

Bjarni Fritzson hefur upplifað ýmislegt á golferlinum

Bjarni í viðtali í hlaðvarpsþættinum Seinni níu hjá Loga Bergmann og Jóni Júlíusi Karlssyni

Handboltaþjálfarinn, fyrirlesarinn og rithöfundurinn Bjarni Fritzson er gestur vikunnar í Seinni níu. Bjarni var mjög öflugur handboltamaður og hefur síðustu ár þjálfað karlalið ÍR. Hann er einnig rithöfundur en barnabækur hans um Orra óstöðvandi hafa notið gríðarlegra vinsælda.

Bjarni er með um 15 í forgjöf og er kominn með mikla golfdellu. Hann er bæði meðlimur í Golfklúbbi Reykjavíkur og hjá Golfklúbbi Grindavíkur, geri aðrir betur.

Bjarni taldi sig eiga auðvelt með að ná tökum á golfíþróttinni þar sem hann hafði verið teknískur hornamaður í handbolta með góða úlnliðstækni. Hann segir frá draumahögginu sem hann sló í Kiðjabergi, segir aðeins frá golfhópnum „Tipsy“ og einnig þegar hann sló í áttræða konu í Frakklandi. Helsti draumur Bjarna í golfinu er að ná allri fjölskyldunni sinni með sér í íþróttina.

Örninn 2025
Örninn 2025

Bjarni velur fimm erfiðustu golfholurnar sem hann leikur á Íslandi og einnig draumahollið.

Frábært spjall um golf og ýmislegt fleira við þennan stórskemmtilega kylfing sem vill helst spila golf með örvhentum.