Willett leiðir með einu í Þýskalandi
Englendingurinn Danny Willett hefur eins höggs forystu fyrir lokahringinn á BMW International Open mótinu sem fram fer í Þýskalandi á Evrópumótaörðinni. Willett er samtals á tólf höggum undir pari eftir þrjá hringi og er höggi á undan þeim Joel Sjoholm frá Svíþjóð og Chris Wood frá Englandi.
Willett lék þriðja hringinn á 69 höggum og er nú aðeins einum hring frá sínum fyrsta sigri á mótaröðinni. „Ég hafði góða stjórn á boltanum í dag. Ég sló boltanum mjög vel af teig og náði að glíma vel við vindinn. Það er gott að eiga möguleika á sigri á ný,“ sagði Willett að hring loknum.


