VefTV: Öldungar í haustlægð í Leiru - Eru konur betri púttarar?
Eldri kylfingar á Íslandi eru orðnir öflugasti golfklúbbur landsins og þeir láta ekki óveður stoppa sig þegar halda skal stigamót til landsliðs.
Kylfingur.is tók upp sjónvarpsvélina og tók nokkur myndskeið í Leirunni þar sem um 80 eldri kylfingar börðust við hvíta boltann í roki og rigningu. Á þessum myndum má sjá hressa kylfinga. Það var ekki auðvelt að slá í Leiru-logninu sem var meira á ferð nú en í sumar. Þrátt fyrir það náðum við tveimur fuglapúttum hjá kvenfólkinu. Körlunum gekk ekki eins vel á flötunum, hverju sem um er að kenna.


