Föstudagur 10. september 2010 kl. 11:02

VefTV: Laddi segir meiri pressu á flötunum en á sviði

Eldri kylfingar munu einnig taka þátt í KPMG-Bikarnum í ár sem hófst í morgun á Korpúlfsstaðavelli. Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, er flinkur kylfingur og er í liði Landsbyggðarinnar sem mætir Höfuðborginni í dag.

Laddi spjallaði við vefsjónvarp Kylfings.is um hvernig það væri að vera í liði landsbyggðarinnar sem hann telur að sé sterkara. Hann telur einnig að það sé mun pressa að eiga tveggja metra pútt fyrir fugli en að standa á sviði.

Mynd/Kylfingur.is