Þriðjudagur 29. mars 2011 kl. 12:28

VefTV: Haney skoðar skrýtna sveiflu milljarðamæringsins Trump

Auðkýfingurinn Donald Trump er áhugasamur kylfingur en sveiflan hans er sérstök og sama má segja um púttstrokuna hjá kappanum.

Sjónvarpsmenn Golf Channel stöðvarinnar í Bandaríkjunum fengu Hank Haney, fyrrverandi þjálfara Tiger Woods til að útskýra sveiflu milljarðamæringsins. Trump útskýrir sjálfur sitt golf í viðtali. Kappinn á nokkra golfvelli og sjálfur leikur hann mikið og hefur sagt að hann sé með 3-4 í forgjöf enda slái hann beint og sé besti púttarinn.