Fimmtudagur 30. september 2010 kl. 09:32

VefTV: Golfbrellumeistari með magnaða sýningu

Kylfingurinn Peter Johncke er enginn venjulegur kylfingur. Hann getur framkvæmt ótrúlegustu hluti með golfkylfunni, já og öðrum hlutum sem líta út eins og golfkylfur en eru það svo sannarlega ekki. Johncke er brellumeistari í orðsins fyllstu merkingu.

Johncke er frá Svíþjóð og er fyrrum atvinnukylfingur. Hann greindist með krabbamein árið 1993 en eftir að hann sigraðist á því fékk hann nýja sýn á lífið og tilveruna. Hann hóf að sýna listir sínar með golfkylfunni ári síðar og hefur í dag ferðast vítt og breitt um heiminn og sýnt golfáhugamönnum margar magnaðar golfbrellur.

Hann vinnur stanslaust að nýjum atriðum og er hreinlega magnað að sjá þennan kylfing að verki. Sjón er sögu ríkari.