Upphitun fyrir Masters: Sæt hefnd Palmer
Arnold Palmer sigraði fjórum sinnum á Masters mótinu á Augusta National vellinum. Árið 1962 vann hann mótið í þriðja sinn og náði að hefna fyrir ófarir sínar ári áður þegar hann missti af sigrinum með því að fá tvöfaldan skolla á lokaholunni. Þá sigraði Gary Player og varð fyrsti alþjóðlegi kylfingurinn til að vinna mótið.
Árið síðar voru þeir Palmer og Player aftur í toppbaráttunni. Palmer var í vandræðum á fyrri níu holunum og virtist vera úr leik þar til að hann fékk magnaðan fugl á 16. holu með frábæru vippi. Hann fékk svo annan fugl á 17. holu sem kom Palmer í bráðabana við Player og Dow Finsterwald um sigurinn. Palmer hafði þar sigur.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá upprifjun frá þessu eftirminnilega móti.

