Sunnudagur 24. júní 2012 kl. 08:08

Tveir efstir fyrir lokahringinn á Travelers

Englendingurinn Brian Davis og Roland Thatcher frá Bandaríkjunum eru efstir fyrir lokahringinn á Travelers Championship mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni. Þeir eru samtals á 12 höggum undir pari eftir þrjá hringi og eru tveimur höggum á undan þeim John Rollins, James Discroll og Stuart Appelby.

Írinn Padraig Harrinton á möguleika á sigri en hann er samtals á níu höggum undir pari gæti unnið sinn fyrsta sigur á PGA-mótaröðinni í nokkur ár. Sigurvegarinn á Opna bandaríska meistaramótinu, Webb Simpson, á einnig ennþá möguleika á sigri en hann er sjö höggum undir pari.

Staðan í mótinu