Stáltaugar hjá Steele sem sigraði í Texas
Bandaríski kylfingurinn Brendan Steele fagnaði sínum fyrsta sigri á PGA-mótaröðinni í gærkvöldi er hann bar sigur úr býtum á Valero Texas Open mótinu sem lauk í gær. Þessi 28 ára kylfingur lék samtals á átta höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á 71 höggi. Hann varð einu höggi á undan Charley Hoffman og Kevin Chappell sem urðu að sætta sig við annað sætið.
Steele þurfti að hafa fyrir sigrinum og var heppinn að missa mótið ekki í bráðabana. Hann náði að bjarga pari á 18. holunni eftir að hafa misst flötina í öðru höggi sínu. Hann vippaði hins vegar inn að holu og setti niður púttið sem tryggði honum sigur í mótinu og keppnisrétt á PGA-mótaröðinni næstu tvö árin.
Fyrir sigurinn fékk 126 milljónir króna sem vafalaust koma sér vel fyrir þennan tiltölulega óþekkta kylfing. Ástralski kylfingurinn Adam Scott, sem átti titil að verja í mótinu, náði sér ekki á strik á lokahringum og varð í 23. sæti eftir að hafa leikið lokahringinn á 76 höggum.

