Sunnudagur 27. mars 2011 kl. 20:59

Slæmur endir hjá Tiger - Lauk leik með tvöföldum skolla

Tiger Woods hefði líklega ekki getað hugsað sér verri endi á Arnold Palmer Invitational mótinu. Hann lék á 72 höggum eða á pari í dag en tapaði þremur höggum á síðustu tveimur holunum. Woods fékk tvöfaldan skolla á 18. holunni. Hann varð að lokum í 25. sæti í mótinu.

Þrátt fyrir það var hann í nokkuð góðu skapi þegar hann ræddi við fjölmiðlamenn eftir hringinn í dag. „Ég var að spila vel í dag og sló boltann vel allan hringinn,“ sagði Woods sem var þremur höggum undir pari áður en hann lenti í vandræðum á lokaholunum.

Þetta var góð vika. Þeir hlutir sem ég hef verið að vinna í voru að virka og mér leið mjög vel á vellinum í dag. Ég var með betri stjórn á vellinum en oft áður. Þetta er að verða þéttara hjá mér. Þetta var góður hringur hjá mér í dag en auðvitað varð ég fyrir vonbrigðum með lokaholurnar í dag,“ sagði Woods en heyra má frekari viðbrögð frá Woods í myndbandinu hér að ofan.