Sunnudagur 24. júní 2012 kl. 20:17

Signý: „Reyndi að halda einbeitingunni“

„Þetta er mjög langt og erfitt mót með mörgum leikjum. Ég reyndi að halda einbeitingu og sjá fyrir mér bikarinn,“ sagði Signý Arnórsdóttir úr Keili sem varð Íslandsmeistari í holukeppni í annað sinn í dag á Leirdalsvelli. Hún lagði Önnu Sólveigu Snorradóttur úr Keili í úrslitaleik.

„Ég var heppin að komast áfram úr riðlakeppninni og þetta er orðið mun jafnara hjá okkur stelpunum. Það er miklu skemmtilegra þegar þetta er svona jafnt hjá okkur. Anna Sólveig spilaði frábærlega í þessu móti og hefur greinilega tekið miklum framförum. Úrslitaleikurinn var mjög jafn, spennandi og skemmtilegur,“ bætti Signý við.

Næst á dagskrá hjá Signýju er Meistaramót Keili sem fram fer í næstu viku. Hún stefnir að því að vinna þann titil í fyrsta sinn. Nánar er rætt við Signýju í myndbandinu hér að ofan.