Poulter og Laird efstir - Woods áfram í vandræðum
Englendingurinn Ian Poulter er efstur eftir fyrsta keppnisdag á Players Meistaramótinu ásamt Skotanum Martin Laird. Mótið fer fram á hinum þekkta Sawgrass velli í Flórída. Poulter og Laird léku fyrsta hringinn á 65 höggum eða sjö höggum undir pari.
Þeir eru einu höggi á undan Bandaríkjamanninum Blake Adams sem er þriðji. Kevin Na og Ben Crane koma svo jafnir á fimm höggum undir pari. Stóru nöfnin í mótinu byrja ekkert sérstaklega og var Tiger Woods enn og aftur langt frá sínu besta. Hann lék á 74 höggum og er í mikilli hættu á að komast ekki í gengum niðurskurðinn.
Lee Westwood og Phil Mickelson eru jafnir á einu höggi undir pari en besti kylfingur heims, N-Írinn Rory McIlroy, lék á pari líkt og þeir Luke Donald og Rickie Fowler.
Poulter var mjög kátur með frammistöðu sína í dag. „Ég lék mjög vel. Þú verður að slá réttu höggunum á réttum tíma á þessum velli. Þetta er mjög erfiður völlur og þú þarft að leika þitt allra besta golf til að leika á góðu skori,“ sagði Poulter eftir hringinn.


