Ótrúlegt jafnvægi - Setur niður pútt standandi á bolta
Í myndbandinu hér að neðan má sjá 59 ára gamla konu sem býr yfir ótrúlegu jafnvægi. Hún getur staðið upp á leikfimibolta og púttað um leið. Þeir sem hafa reynt að standa á slíkum bolta vita hversu erfitt það er. Að pútta á slíkum bolta er því mikið afrek. Að setja niður nokkra metra pútt, standandi á bolta og með 52‘ tommu pútter er magnað.

