Sunnudagur 1. apríl 2012 kl. 11:22

Oosthuizen með tveggja högga forystu

Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku hefur tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Shell Houston Open mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni. Oosthuizen er samtals á 17 höggum undir pari í mótinu eftir að hafa leikið á 66 höggum í gær og er tveimur höggum á undan Bandaríkjamanninum Hunter Mahan.

Oosthuizen fær væntanlega mikla samkeppni um sigurinn því margir þekktir kylfingar eru ofarlega á töflunni. Brian Davis frá Englandi og Svíinn Carl Petterson eru í 3. sæti á 14 höggum undir pari.

Phil Mickelson á titil að verja í mótinu og er hann á 11 höggum undir pari í mótinu. Ólíklegt þykir að hann nái að verja titilinn en það skal þó ekki útiloka.

Staðan í mótinu