Sunnudagur 1. apríl 2012 kl. 23:34

Olesen vann í fyrsta sinn - Wood jafnaði vallarmetið

Daninn Thorbjorn Olesen vann í dag sinn fyrsta sigur á Evrópumótaröðinni þegar hann sigraði á Sicilian Open mótinu. Olesen mátti hafa sig allan við til að tryggja sér sigurinn því hann fékk mikla samkeppni frá Englendingnum Chris Wood sem jafnaði vallarmetið með því að leika á 64 höggum eða átta höggum undir pari.

Olesen lék samtals á 15 höggum undir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Hann varð einu höggi á undan Wood sem lék best allra í dag.

Þetta er ótrúleg tilfinning. Ég hef þrisvar orðið í öðru sæti og það er frábært að vinna loksins,“ sagði þessi 22ja ára gamli Dani sem margir spá bjartri framtíð. Mótið var gott hjá Dönum því Sören Kjeldsen varð þriðji á tólf höggum undir pari ásamt Belganum Nicolas Colsaerts.

Lokastaðan í mótinu