Þriðjudagur 8. maí 2012 kl. 12:36

Mickelson í Frægðarhöllina ásamt fjórum öðrum

Í gærkvöld var Phil Mickelson formlega tekinn inn í Frægðarhöll golfsins (e. Hall of fame). Mickelson, sem stundum hefur verið kallaður maður fólksins í golfheiminum, á að baki frábæran golfferil sem getur ennþá orðið enn betri enda er Mickelson aðeins 42 ára gamall.

Mickelson var tekinn inn í Frægðarhöll golfsins ásamt Skotanum Sandy Lyle, blaðamanninum Dan Jenkins, leikmanninum og golflýsandanum Peter Alliss, og Hollis Stacy sem lék á LPGA-mótaröðinni. Þau eru 2012 árgangurinn í Frægðarhöll golfsins. Nú er alls 141 einstaklingur í Frægðarhöllinni.

Hér að ofan má sjá viðtali við Mickelson eftir athöfnina.