Laugardagur 19. maí 2012 kl. 18:44

McDowell áfram í undanúrslit

Norður-Írinn Graeme McDowell hafði betur gegn Spánverjanum Sergio Garcia í bráðabana til að komast áfram í undanúrslit á Volvo World Match Play mótinu sem fram fer á Spáni og er hluti af Evrópumótaröðinni. McDowell lagði Garcia á 19. holu og leikur því gegn Spánverjanum Rafael Cabera-Bello á morgun en hann lagði landa sinn Alvaro Quiros í dag.

Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Belginn Nicloas Colsaerts og Skotinn Paul Lawrie. Sá síðarnefndi fór illa með Retief Goosen frá Suður-Afríku. Colsaerts lagði hins vegar Bandaríkjamanninn Brandt Snedeker.