Mahan sigraði í Houston
Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan vann í kvöld sinn fimmta sigur á PGA-mótaröðinni þegar hann fór með sigur af hólmi í Shell Houston Open mótinu. Hann lék samtals á 16 höggum undir pari og varð einu höggi á undan Carl Petterson frá Svíþjóð sem varð annar.
Mahan fékk par á hinni erfiðu 18. holu til að tryggja sér sigurinn í mótinu. Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku varð í þriðja sæti eftir að hafa leikið lokahringinn á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari. Hann lék samtals á 14 höggum undir pari í mótinu.
Mahan er nú kominn á topp FedEx stigalistans eftir gott gengi í ár. Í febrúar sigraði hann á Heimsmótinu í holukeppni og þykir til alls líklegur í Masters mótinu sem hefst á fimmtudag. Mahan fær um 130 milljónir króna fyrir sigurinn.


