Jacobsen efstur á Travelers
Svíinn Fredrik Jacobsen er efstur eftir tvo keppnisdaga á Travelers mótinu á PGA-mótaröðinni. Hann er samtals á níu höggum undir pari eftir tvo hringi og hefur eins höggs forystu á Ástralann Nathan Green sem er annar. Green hefur þó aðeins leikið níu holur á öðrum hring og getur því náð forystu í dag.
Veðuraðstæður urðu til þess að ekki var hægt að ljúka öðrum hring í gær. Aðeins 76 kylfingar náðu að ljúka leik á öðrum hring og því getur staðan breyst talsvert þegar öðrum hring lýkur í dag.
„Það er gaman að eiga nokkrar fuglaholur. Eftir að hafa leikið á Opna bandaríska þá er gaman að spila aftur á velli þar sem þú getur átt góðan möguleika á fugli á ný,“ sagði Jacobsen sem á titil að verja í mótinu.


