Hörður Þorsteins.: Forgjöfin að verða lægri
„Ég er afskaplega sáttur með að fá Íslandsbanka til samstarfs við okkur. Íslandsbanki styður..
„Ég er afskaplega sáttur með að fá Íslandsbanka til samstarfs við okkur. Íslandsbanki styður vel við bakið á barna- og unglingastarfi,“ segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ.
„Það fjölgar sífellt keppendum á barna- og unglingamótaröðunum og forgjöfin er að verða lægri. Starfið hjá klúbbunum er mikið og það er fjölgun allsstaðar. Það er einu móti fleira á mótaröðunum í sumar og ég er sannfærður um það að það verði mikið stuð á Íslandsbankamótaröð unglinga í sumar.“
Nánar má heyra í Herði í myndbandinu hér að neðan.

