Henning Darri: „Var í fantastuði“
„Ég er virkilega sáttur, var að slá hörkugolfhögg og púttin voru að detta í dag,“ segir Henning Darri Þórðarson úr Keili sem sigraði örugglega í strákaflokki á Akranesi í dag þar sem fyrsta stigamótið á Arion-banka unglingamótaröðinni fer fram.
Henning lék á 70 höggum í dag eða tveimur höggum undir pari sem er frábær frammistaða enda er Henning Darri með um átta í forgjöf. Það má því búast við að forgjöfin lækki mikið hjá þessum efnilega Keilismanni.
„Það er alltaf gott að sigra og þetta er fyrsti sigurinn. Ég var í fantastuði í dag og í gær. Þetta var hörkumót hjá mér. Ég stefni á að verða í efstu tveimur sætunum á stigalistanum og koma forgjöfinni niður fyrir sex,“ segir Henning sem fór langleiðina með að ná síðara markmiði sínu í dag.
Nánar er rætt við þennan efnilega kylfing í myndbandinu hér að ofan.

