Sunnudagur 24. júní 2012 kl. 17:42

Haraldur Franklín: „Fuglinn á 12. holu var vendipunkturinn“

„Ég ætlaði að vinna en það voru auðvitað ekki miklar líkur fyrir mótið. Það dettur einn kylfingur út í hverjum leik. Það eina sem ég hugsaði um var að spila betur en hinir. Það hefur ekki gengið vel í þessu keppnisfyrirkomulagi undanfarin ár en þetta gekk vel í ár,“ sagði Haraldur Franklín Magnús úr GR sem hampaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli á Eimskipsmótaröðinni. Hann sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni eftir spennandi úrslitaleik við Hlyn Geir Hjartarson úr GOS á Leirdalsvelli í dag.

„Ég spilaði marga erfiða leiki og margir þeirra enduðu á 18. holu. Leikurinn við Andra Þór (Björnsson) fór alla leið á 21. holu þannig að það var erfiðasti leikurinn í mótinu. Í úrslitaleiknum eru það fjórar holur sem falla þannig að þetta var fram og tilbaka. Vendipunkturinn var líklega þegar ég vippaði í á 12. holu fyrir fugli,“ sagði Haraldur kátur.
Nánar má heyra í Haraldi Franklín í viðtalinu hér að ofan.