Miðvikudagur 15. maí 2013 kl. 07:59

GolfTV – Byrjunin ljómandi góð,“ segir Guðjón í Intersport

„Byrjunin hjá okkur hefur verið ljómandi góð og fólk er almennt ánægt með að sjá góð verð..

„Byrjunin hjá okkur hefur verið ljómandi góð og fólk er almennt ánægt með að sjá góð verð. Við erum mjög ánægðir,“ segir Guðjón B. Gunnarsson, verslunarstjóri nýrrar golfbúðar í Intersport Lindum.

Kylfingur.is leit við í gær í verslunni og er gott úrval af kylfum, skóm, fatnaði og öllu því sem kylfingurinn þarf á að halda á golfvellinum. Fyrir voru fimm golfverslanir á höfuðborgarsvæðinu þegar forráðamenn Intersport réðust í opnun nýrrar golfbúðar í Intersport Lindum. Þrátt fyrir að markaðurinn sé harður þá er Guðjón bjartsýnn.

„Styrkur okkar liggur í yfirbyggingu Intersport. Við getum leyft okkur að leggja lægri álagningu á vörur og það vonandi skilar sér í betra verði og ánægðum viðskiptavinum,“ segir Guðjón. Hann segist finna fyrir auknum áhuga kylfinga þegar skammt er í golfsumarið.

„Við erum auðvitað öll að bíða eftir hærra hitastigi en menn eru farnir að vakna og vilja prófa kylfur og gramsa í þessu. Hér er hægt að prófa kylfur og fá mælingu. Hér er allt sem kylfingurinn þarf í golfið, hvort sem það er fatnaður, skór eða kylfur.“

Nánar er rætt við Guðjón í myndbandinu hér að neðan.