GolfTV: Woods hlær að pylsukastinu
Tiger Woods lenti í óvenjulegu atviki á Frys.com Open mótinu þegar áhorfandi ruddist inn á 7. flöt á lokahringnum og reyndi að kasta pylsu í Woods. Pylsan fór hvergi nærri Woods og var áhorfandinn handtekinn skömmu síðar.
„Það hljóp einhver gaur upp að flötinni og hélt á pylsu. Ég veit ekki hvernig hann kastaði pylsunni en ég var einbeittur á púttið sem ég átti framundan. Allt í einu hafði hann lagst niður á flötina og það leit út eins og að hann vildi láta handtaka sig,“ sagði Woods brosandi.
Woods hefur áður lent í óvenjulegum atvikum á sínum ferli og líklega eftirminnilegast þegar nakinn kona hljóp inn á golfvöllinn er Woods gekk upp 18. flötina á Opna breska meistaramótinu árið 2000 sem fram fór í St. Andrews.


