Þriðjudagur 29. mars 2011 kl. 10:25

GolfTV: Wie ætlar sér stóra hluti í ár

Kylfingurinn Michelle Wie er ein af þekktustu kvenkylfingum heims og hefur hún mátt þola mikla fjölmiðaathygli frá unga aldri. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar hún var aðeins 14 ára gömul og var þá titluð sem undrabarn.

Hún hefur ekki alveg náð að standa undir þeim miklu væntingum sem til hennar voru gerðar en ferill hennar virðist þó vera á uppleið. Það er nóg að gera hjá henni um þessar mundir því auk þess að keppa í öllum stærstu mótunum á LPGA-mótaröðinni þá stundar hún einnig nám við Stanford háskólann í Kaliforníu.

Wie hefur tvisvar sigrað á LPGA-mótaröðinni og vonast til að 2011 verði árið þar sem ferill hennar nær nýjum hæðum. „Ég lagði mikið á mig á undirbúningstímabilinu við að bæta mig. Ég legg áherslu á að æfa stöðugt alla þætti golfsins því ef ég æfi eitthvað eitt þá klikkar eitthvað annað hjá mér,“ segir Wie sem vonar að einn daginn verði hún jafngóð og Tiger Woods.

Viðtal við Wie má sjá hér að ofan.