Laugardagur 19. janúar 2013 kl. 15:57

GolfTV: Virkar slá eins og Happy Gilmore?

Það hafa margir golfáhugamenn séð kvikmyndina Happy Gilmore þar sem golfíþróttin á stóran sess. Adam Sandler..

Það hafa margir golfáhugamenn séð kvikmyndina Happy Gilmore þar sem golfíþróttin skipar stóran sess. Adam Sandler leikur aðalhlutverkið í myndinni og fjallar um ungan mann sem nær miklum árangri á golfvellinum vegna mikillar högglengdar.

Högglendin nær hann vegnar sérstæðrar sveiflu sem flestir hafa vafalaust prófað. Sjónvarpsþátturinn Sport Science á ESPN kannaði fyrir nokkru hvort það væri raunverulega hægt að leika golf með þessu móti.

Þátturinn fékk Írann Padraig Harrington, þrefaldan risameistara, til að slá ‚Happy Gilmore stæl‘ með sanni má segja að Harrington hafi náð að tileinka sér vel þessa sveiflu. Hann sló að meðaltali um 25 metrum lengra en með venjulegri sveiflu. Nánar má sjá umfjöllun um þetta mál hér að neðan.