GolfTV: Viltu losna við slæsið? – Þá er hamargripið málið
Golfbrellumeistarinn Jeremy Dale hefur verið áberandi hér á Kylfingi.is að undanförnu. Hann er afar fær á sínu sviði en brellur hans geta líka haft í för með sér aukin skilning á því hvers vegna boltinn fer þangað sem hann fer.
Margir kylfingar eiga í vandræðum með að losna við slæsið sem er þyrnir í augum margra golfáhugamanna. Skal engan undan enda er fátt leiðinlegra en að missa dýrmæta metra í upphafshöggunum.
Með því að halda á kylfunni líkt og þú myndir gera þegar þú notar hamar þá ættir þú að geta komið í veg fyrir slæsið. Það er fyrst og fremst rangt grip sem stuðlar að slæsi og með að laga þennan auðvelda þátt gæti forgjöfin verið á hraðri niðurleið í sumar. Dale útskýrir þetta betur í myndbandinu hér að ofan.


