GolfTV: Verður þetta jólagjöf kylfingsins í ár?
Það eru margir hlutir sem eru framleiddir á hverju ári sem eiga að vekja áhuga hjá kylfingum. Þar á meðal er þetta samsetta golfsett sem er leyst upp í „frumeindir“ eftir notkun og það fer lítið fyrir því á ferðalögum. Í myndbandinu hér fyrir neðan er sagan öll og það er margt áhugavert við þessa hönnun. Stóra spurningin er hvort kylfingar hafi áhuga á að fjárfesta í slíkri „græju“.

