Fimmtudagur 16. maí 2013 kl. 10:58

GolfTV: Tíu vandræðalegustu augnablikin á Opna breska

Opna breska meistaramótið er eitt af stærstu golfmótum ársins í heiminum og alla dreymir um..

Opna breska meistaramótið er eitt af stærstu golfmótum ársins í heiminum og alla dreymir um að lyfta Silfurkönnunni eftirsóttu. Þó það séu mörg stórkostleg augnablik sem lifa lengi í minningunni þá eru einnig mörg mjög vandræðaleg augnablik sem gaman er að rifja upp.

Breski golfsjónvarpsþátturinn Golfing World hefur tekið saman tíu vandræðalegustu augnablikin á Opna breska í gegnum tíðina. Kylfingar líkt og Jack Nicklaus, Tiger Woods, Ian Woodsnam, Jean van De Velde, Sergio Garcia o.fl. koma við sögu í þessu skemmtilega myndbandi sem sjá má hér að neðan.